Geðlestin í Gulum September – Höfn í Hornafirði Nýheimar

Date

25 Sep 2024
Expired!

Time

20:00 - 21:30

Location

Nýheimar
Höfn

Á döfinni

May 2026
June 2026
August 2026
October 2026
November 2026
January 2027
February 2027
April 2027
June 2027
July 2027
September 2027
October 2027
No event found!
Load More

Í tilefni af Gulum september ætla landssamtökin Geðhjálp að ferðast um landið og bjóða upp á samtal um geðrækt og geðheilsu í bland við tónlist og gleði.

Geðlestin er heiti verkefnisins en það hefur áður farið um landið en þá var áherslan á börn og ungmenni en núna er ætlunin að hitta sveitarstjórnir, félags- og skólamálayfirvöld annars vegar og almenning hins vegar. Við hittum sveitarstjórnir og félags- og skólayfirvöld í hádeginu en almenning á kvöldfundum.
Kvölddagskrá hefst á stuttri kynningu á Geðhjálp og starfi samtakanna. Eftir það verður farið yfir mikilvægi reglulegrar geðræktar út lífið og ýmsar leiðir þar nefndar. Þá mun einstaklingur segja frá sinni reynslu af geðrænum áskorunum og hvernig bata var náð og hvaða verkfæri hafa reynst best.
Eftir reynslusöguna verða umræður/samtal. Í lokin stíga þeir félagar Emmsjé Gauti og Þormóður á svið og leika nokkur lög til að árétta að geðrækt er líka gleði og skemmtun. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.