Hin árlega ráðstefna um íslenska þjóðfélagið er haldin á ólíkum stöðum um landið og að þessu sinni á Höfn, á vegum Nýheima þekkingarseturs. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Unga fólkið og framtíðin. Á ráðstefnunni kynnir fræðafólk á sviði hug- og félagsvísinda rannsóknir sínar.
Erindi öllum opin
Fyrirlestrar ráðstefnunnar eru öllum opnir. Við hvetjum íbúa sveitarfélagsins til að kynna sér fjölbreytt úrval erinda. Fyrirlesarar koma úr röðum fremsta hug- og félagsvísindafólks landsins.
Lykilfyrirlesarar ráðstefnunnar verða tveir:

Dr. Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði og rannsóknadósent í þverfaglegum umhverfisfræðum. „Bráðnun jökla – böl eða blessun? Hamfarahlýnun í staðbundnu menningar- og samfélagslegu samhengi“.

Dr. Sunna Símonardóttir, lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri: „Óvissa, ábyrgð og óljós framtíð: Viðhorf ungs fólks til barneigna“.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna má nálgast hjá Hugrúnu Hörpu (hugrunharpa@nyheimar.is)