Verkþætti tvö í NICHE lokið

Verkþætti tvö í NICHE lokið Kortlagningu og greiningu lokið í NICHE Skýrslan Kortlagning og greining: að tengja störf við óáþreifanlegan menningararf við EQF og ESCO er nú aðgengileg á netinu, á ensku. Um er að ræða afurð annars verkþáttar Erasmus+ verkefnisins NICHE. Í skýrslunni má finna yfirlit yfir kortlagningu á færni fólks sem starfar […]
Matsjáin

Landshlutasamtök sveitarfélaga, Samtök smáframleiðanda matvæla (SSFM) og RATA standa að Matsjánni, viðskiptahraðli fyrir smáframleiðendum matvæla. Matsjánni er ætlað að efla leiðtogafærini þátttakenda, efla þá í að þróa vörur og þjónustu og bæta tengsl sín í grein sinni. Verkefnið fer fram í sjö lotum á netinu frá janúar og lýkur með uppskeruhátíð í apríl. Verkefnið hlaut styrk úr Matvælasjóði og er […]
Uppbyggingarsjóður Suðurlands: Úthlutun Styrkja Haust 2021

Samtök sunnlenskra sveitafélaga (SASS) hafa úthlutað styrkjum úr Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Um var að ræða síðari úthlutun sjóðsins árið 2021 og voru umsóknir 112 talsins að þessu sinni. Úthlutað var 39 m.kr. til 75 verkefna, þar af 25 verkefni í flokki atvinnu- og nýsköpunar og 50 í flokki menningarverkefna. Af þessum 75 verkefnum sem hlutu styrk eru 11 verkefni í Sveitafélaginu Hornafirði, 1 í flokki atvinnu- og nýsköpunar og 10 í flokki menningar. Verkefnin […]
Smáframleiðendur matvæla sameinast í Matsjánni

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matsjána, verkefni sem er ætlað smáframleiðendum matvæla sem vilja efla leiðtogafærni sína, öðlast aukna getu til að þróa vörur og þjónustu og efla tengslanetið sitt í greininni. Matsjáin fer fram á 14 vikna tímabili frá 6. janúar til 7. apríl og samanstendur af sjö lotum með heimafundum/jafningjaráðgjöf, fræðslu og […]
Stafræn samfélög – verkefni

Nýheimar þekkingarsetur hlaut í fyrsta sinn haustið 2020 styrk frá Rannís fyrir Erasmus+ verkefni. Setrið er því umsóknar- og ábyrgðaraðili verkefnisins en samstarfsaðilar eru sex talsins, frá fimm Evrópulöndum, þ.e. Búlgaríu, Hollandi, Svíþjóð, Spáni og Íslandi en þátttakendur frá Íslandi eru auk setursins og Þekkingarnet Þingeyinga. Verkefnið heitir Digital skills and competences of local communities […]
Óáþreifanlegur menningararfur í NICHE

Nýverið lauk verklið tvö í Erasmus+ verkefninu NICHE en í því fólst að samstarfsaðilar rýndu í raunverulegar aðstæður í störfum tengdum óáþreifanlegum menningararfi. Greind var þörf á þjálfun hjá viðkomandi stéttum og þróun geirans kortlögð. Hver þátttakandi greindi frá niðurstöðum um stöðuna í sínu landi og samantekt þessara þátta verður grunnur að verkþætti þrjú í verkefninu. Markmið NICHE er að efla frumkvöðlastarfsemi á vettvangi óáþreifanlegs menningararfs með því að þróa þjálfunarleiðir og […]
Þjóðsögur – fundur

Síðustu vikuna hafa tveir starfsmenn setursins verið við vinnu á Spáni þar sem fram fór fundur í evrópska samstarfsverkefninu Þjóðsögur. Fundurinn var haldin í Denia milli Alicante og Valencia hjá samstarfsaðila setursins Javier frá Tradigenia. Þetta var fyrsti fundur verkefnisins í raunheimum en verkefnið er til tveggja ára og hófst síðla árs 2020. Auk Íslands og Spánar eru samstarfsaðilar verkefnisins frá Svíþjóð, Hollandi og Búlgaríu. Verkefninu Þjóðsögur miðar vel áfram […]
Nýir starfsmenn hjá Nýheimum þekkingarsetri

Nú í haust hafa þrír nýir starfsmenn bæst í hópinn hjá Nýheimum þekkingarsetri. Guðný Gígja Benediktsdóttir mun leysa Guðrúnu Ásdísi af á komandi vetri á meðan Guðrún verður í námsleyfi. Guðný Gígja er ferðamálafræðingur og hefur starfað í ferðaþjónustu í höfuðborginni undanfarinn áratug. Þá starfaði hún einnig sem landvörður hjá Vatnajökulsþjóðgarði síðasta sumar með aðsetur […]
Rannsókn á þolmörkum Breiðamerkursands

Nýheimar Þekkingarsetur og Náttúrustofa Suðusturlands hafa tekið að sér framkvæmd rannsóknarverkefnis á þolmörkum Breiðamerkursands fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Að verkefninu koma einnig Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Hornafirði og aðrar fagstofnanir auk sérfræðinga Vatnajökulsþjóðgarðs. Vinna við verkefnið hófst í ágúst 2021 og áætlað er að því ljúki við lok árs 2022. Markmið þolmarkarannsóknarinnar er að meta ástand svæðisins og gera áætlun um hvernig tryggja megi sjálfbæra þróun þess. Lögð verður áhersla á fjögur svæði […]
LEGENDS – fréttabréf 2

Legends verkefnið vinnur að þróun lykilhæfni með notkun óáþreifanlegs menningararfs, með því að skoða þjóðsögur og goðsagnir í Evrópu. Verkefnið miðar að fullorðnum einstaklingum búsettum í dreifbýli eða með skert tækifæri til náms. Legends býður upp á nýstárlegar kennsluaðferðir sem tvinna saman hefðbundnar þjóðsögur og goðsagnir og þróun á lykilhæfniþáttum fullorðinna einstaklinga. Nú er fyrsta […]