Aðildarstofnanir að Nýheimum
Stofnaðilar Nýheima þekkingarseturs voru: Skólaskrifstofa Hornafjarðar, Háskóli Íslands, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ríki Vatnajökuls, Náttúrustofa Suðausturlands, Matís, Menningarmiðstöð Hornafjarðar og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga.
Síðar gerðust Háskólafélag Suðurlands, Vatnajökulsþjóðgarður og Vöruhúsið aðilar að setrinu. Aðildarstofnanir setursins eru nú ellefu talsins en þegar Nýsköpunarmiðstöð Íslands var lögð niður í ársbyrjun 2021 var aðild hennar að setrinu slitið.
Aðilar að Nýheimum þekkingarsetri eru af ólíkum toga með fjölbreytt verkefna- og rannsóknasvið. Aðildarstofnanir hafa með sér þverfaglegt og hagnýtt samstarf sem miðar að því að stuðla að jákvæðri byggðaþróun á Suðausturlandi og bæta lífsgæði á svæðinu.
Stofnanirnar eiga allar fulltrúa í stjórn þekkingarsetursins. Á reglulegum stjórnarfundum eiga fulltrúar þeirra samtal um málefni svæðisins og samfélagsins á Suðausturlandi með áherslu á stoðir setursins: menntun, menningu, nýsköpun og rannsóknir.
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu (FAS)
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) Framhaldsnám í skólanum tengist list- og verkgreinum jafnhliða bóklegu námi til stúdentsprófs. Skólastarfið tekur mið af umhverfi sínu og atvinnuháttum byggðarlagsins. Nemendur fá tækifæri til að vinna að náttúrufarsrannsóknum og einnig er fjallamennskunám í boði þar
Fræðsluskrifstofa Hornafjarðar
Fræðsluskrifstofa Hornafjarðar Fræðslustjóri er framkvæmdastjóri fræðslusviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar og hefur yfirumsjón með starfsemi og rekstri leik- og grunnskóla og tónskóla í samráði við skólastjórnendur. Undir hann heyrir einnig sérfræðiþjónusta skóla og íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamál. www.hornafjordur.is
Háskólafélag Suðurlands
Háskólafélag Suðurlands Háskólafélag Suðurlands er félag í eigu sveitarfélaganna á Suðurlandi. Markmið félagsins er að auka búsetugæði í héraðinu með uppbyggingu þekkingarsamfélags. Leitast er við að vinna að þessum markmiðum með þrennum hætti– Bætt aðgengi að menntun, einkum á háskólastigi
Matís
Matís Árið 2008 var Matarsmiðja Matís opnuð í tengslum við starfsstöðina á Höfn. Í smiðjunni býðst frumkvöðlum og litlum fyrirtækjum tækifæri til að stunda vöruþróun og hefja smáframleiðslu á matvælum gegn vægu leigugjaldi. Þannig spara þeir fjárfestingu í dýrum tækjabúnaði strax í upphafi rekstrar. Með
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Menningarmiðstöð Hornafjarðar Innan Menningarmiðstöðvarinnar eru sex safneiningar, byggða-, sjóminja-, náttúrugripa-, lista-, bóka- og héraðsskjalasafn ásamt rannsóknarsviði sem starfar þvert á einingarnar. Byggða-, sjóminja- og náttúrugripasafn. Safninu er ætlað að safna minjum sem lýsa mannlífi héraðsins, það er heimilishaldi, félagslífi, samgöngum
Náttúrustofa Suðausturlands
Náttúrustofa Suðausturlands Náttúrustofa Suðausturlands er rannsóknastofnun á sviði náttúrufræða og starfar samkvæmt lögum nr. 60/1992. Hún er ein af átta náttúrustofum sem starfræktar eru á Íslandi og var sett á laggirnar árið 2013. Stofan er rekin af Sveitarfélaginu Hornafirði og
Nýheimar þekkingarsetur
Nýheimar þekkingarsetur er samstarfshattur fjölbreyttra stofnana sem starfa á sviði menntunar, menningar, nýsköpunar og rannsókna á Suðausturlandi. Aðilar að setrinu eru meðal annars: Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Fræðsluskrifstofa Hornafjarðar, Háskólafélag Suðurlands, Matís, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Náttúrustofa Suðausturlands, Nýsköpunarmiðstöð, Ríki Vatnajökuls, Samband sunnlenskra
Ríki Vatnajökuls
Ríki Vatnajökuls Ríki Vatnajökuls ehf. er ferðaþjónustu-, matvæla- og menningarklasi Suðausturlands. Meginhlutverk hans er að vinna að markaðssetningu svæðisins með áherslu á vetrartímann. Svæðið nær frá Lómagnúp í vestri að Hvalnesi í austri og heyrir undir Sveitarfélagið Hornafjörð. Unnið er
Samband sunnlenskra sveitafélaga (SASS)
Samband sunnlenskra sveitafélaga (SASS) SASS eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurlandi. Megin starfsemin felst í hagsmunagæslu fyrir íbúa og sveitarfélögin 15 sem eru aðilar að samtökunum. SASS veitir ýmsa aðra þjónustu sem tengist flest samningum og framlögum frá hinu opinbera og
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands er rannsóknastofnun sem heyrir undir háskólaráð. Rannsóknir eru meginverkefni stofnunarinnar og rannsóknasetra háskólans víðs vegar um landið. Viðfangsefnin eru fjölbreytt en á meðal þeirra eru náttúruvísindi, lífríki hafsins, umhverfi og landnýting, hvalir,
Vatnajökullsþjóðgarður
Vatnajökulsþjóðgarður Þjóðgarðurinn heyrir undir Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og skiptist í fjögur rekstrarsvæði. Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs er á Suðausturlandi, að stærstum hluta innan sveitarfélagsins Hornafjarðar. Þjóðgarðsmörkin fylgja jökuljaðrinum víðast hvar en á nokkrum stöðum ná mörkin niður á láglendið. Með friðlýsingu Breiðamerkursands
Vöruhúsið
Vöruhúsið Vöruhúsið er list- og verkgreinahús þar sem einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki geta nýtt aðstöðu, sótt þekkingu og treyst tengslanet sitt á sviði sköpunar. Grunnskóli Hornafjarðar og Framhaldsskóli Austur- Skaftafellsýslu bjóða upp á formlegt nám í smíði, textíl, myndmennt, ljósmyndun