Ungt fólk og fjölbreytileiki – málþing í Nýheimum

Í gær, fimmtudag, héldu Nýheimar þekkingarsetur og Vísindafélag Íslendinga málþing um ungt fólk og fjölbreytileika. Til umfjöllunar voru ýmis málefni sem varða ungt fólk og stöðu þess og var málþingið vel sótt. Málþingið er haldið í tilefni aldarafmælis Vísindafélagsins og fullveldis Íslands þann 1. desember. Er þetta annað málþingið í röð sex málþinga um vísindi og […]
Háskólanemar velkomnir í Nýheima
Nýheimar þekkingarsetur hefur tekið við umsjón um námsaðstöðu og fjarpróf háskólanema af Háskólafélagi Suðurlands. Það er okkur mikið kappsmál að gera háskólanám sem aðgengilegast fyrir alla, hvort sem er í staðar- eða fjarnámi. Eftirfarandi þjónusta er í boði fyrir háskólanema sem kjósa að gera námsaðstöðu samning við Nýheima þekkingarsetur: aðgangur að Nýheimum alla daga frá […]
Ungt fólk og fjölbreytileiki – málþing

Nýheimar þekkingarsetur ásamt Vísindafélagi Íslendinga bjóða Hornfirðingum á málþing um ungt fólk og fjölbreytileika í Nýheimum fimmudaginn 20.september kl.16. Allir velkomnir og heitt á könnunni. Til umfjöllunar verða ýmis mál sem varða ungt fólk og stöðu þess auk erinda um ungt fólk á Hornafirði og fjölmenningarmál í sveitarfélaginu. Fyrirlesarar og erindi eru eftirfarandi: Hugrún Harpa Reynisdóttir, […]
Loftslag og leiðsögn

Nýheimar þekkingarsetur hefur í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð unnið að gerð fræðsluefnis um loftslagsbreytingar sem nú er aðgengilegt á heimasíðunni okkar undir hlekknum “Loftslag og Leiðsögn – Climate and guidance” https://nyheimar.is/lifandi-kennslustofa/loftslag-og-leidsogn/. Er textinn bæði á íslensku og ensku og hann má einnig nálgast á pdf formi. Verkefni þetta er liður í stærra samvinnuverkefni umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Vatnajökulsþjóðgarðs sem ber heitið Hörfandi jöklar sem unnið er í […]
Nýr verkefnastjóri hjá Nýheimum þekkingarsetri

Sandra Björg Stefánsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Nýheimum þekkingarsetri. Þá hefur hún lokið meistaranámi í mannauðsstjórnun frá HÍ. Þá starfaði hún hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands og Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu ásamt því að sinna ýmsum félagsstörfum. Sandra Björg er nú flutt aftur til Hafnar ásamt manni sínum og árs gamalli dóttur.
Ársfundur Nýheima þekkingarseturs
Minnum á ársfund Nýheima þekkingarseturs á morgun, miðvikudaginn 18.apríl. Fundurinn er haldinn í sal Nýheima. Heitt á könnunni og allir velkomnir. Dagskrá: 1) Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum Nýheima þekkingarseturs. a) Skýrsla stjórnar b) Ársreikningur Nýheima þekkingarseturs c) Tilnefningar í stjórn 2) Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir kynnir verkefni SASS 3) Önnur mál Hvetjum alla […]
Löggæsla og samfélagið – Löggæsla í dreifbýli
Nýheimar þekkingarsetur vill vekja athygli áhugasamra á ráðstefnu um löggæslu og samfélagið sem haldin verður miðvikudaginn 21. febrúar í Háskólanum á Akureyri. Á vef Háskóla Akureyrar segir um ráðstefnuna: Þema þessarar fyrstu ráðstefnu er löggæsla í dreifbýli. Alla jafna eru færri afbrot framin í dreifbýli en þéttbýli og endurspeglast þessi staðreynd í þeirri friðsælu hugsýn […]
Starfið í Nýheimum

Árið 2017 urðu Nýheimar 15 ára, þá er átt við bygginguna við Litlubrú 2. Starfsemi þar hófst haustið 2002 þegar Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) flutti úr Nesjaskóla í Nýheima. Frá þeim tíma hafa hinar ýmsu stofnanir haft aðstöðu á neðri hæð hússins, á Háskólagangi og Frumkvöðlagangi. Óhætt er að segja að nú sé kominn nokkuð […]
Starf verkefnastjóra hjá Nýheimum þekkingarsetri á Höfn í Hornafirði

Óskað er eftir öflugum aðila í starf verkefnastjóra hjá Nýheimum þekkingarsetri. Starfið er fjölþætt og heyrir undir forstöðumann setursins. Verkefnastjóri mun þó jafnframt sinna verkefnum fyrir Náttúrustofu Suðausturlands í tengslum við samstarfssamning stofnananna. Helstu ábyrgðarsvið: Umsjón með stærri og smærri verkefnum Undirbúningur, skipulagning, áætlanagerð og eftirfylgni verkefna í samræmi við stefnu setursins Verkefnavinna, þjónusta […]
Jólapróf háskólanema

Nýheimar þekkingarsetur hóf nýverið að þjónusta háskólanema með lestraraðstöðu og umsjón fjarprófa. Nú er fyrstu prófatíð Nýheima þekkingarseturs lokið og tóku 20 nemar alls 44 lokapróf. Flestir nemanna stunda fjarnám frá Háskóla Íslands eða Háskóla Akureyrar en einnig nutu Hornfirðingar sem stunda staðarnám þess að komast fyrr heim og taka sín próf í Nýheimum. Prófatörnin gekk vel fyrir sig og voru tekin sjö próf samdægurs þegar mest var. Strax í byrjun janúar halda prófin áfram þegar sjúkra- og upptökupróf HÍ og HA fara fram. Þeir nemar sem áhuga hafa á að taka í framtíðinni sín próf í Nýheimum er bent á að skrá […]